Færsluflokkur: Bloggar

Einn dáin í viðbót!

Nú dó einn hvolpurin í fyrradag, ég er mjög sorgmætt yfir því Gráta

Vona bara að hinir tveir hafi þetta af veit ekki hvað ég myndi gera ef þeir myndu drepast líka!

Ef einhver er með góð ráð til að koma í veg fyrir þetta þá þigg ég þau með þökkum!


Skrýtið...

Mér þykir það skrýtið að ég sé að fara að gifta mig. Ég ætlaði mér aldrei að giftast því mér þótti engin þörf á því, mér fannst það ekki eiga við mig að standa frammi fyrir Guði og allri fjölskylduni að heita óendanlegri ást, umhyggju og stuðningi gegnum súrt og sætt. En maður þarf þess víst ekki það er nóg að fara bara til sýslumanns sem kemur sér vel fyrir mig hina ótrúuðu og unnustan sem er í öðru trúsamfélagi. Saklaus

Þó maður hafi þennan kvíða alltaf til staðar þá veit maður nákvæmlega hvað maður er að gera þó svo maður spyrji sig á hálftíma fresti,  Veit ég hvað ég er að gera? Er þetta rétti gaurin? Hvað ef hann heldur framhjá mér? og þar fram eftir götunum.. Það getur engin látið þennan kvíða bara hverfa því þetta er stórt skref sem maður er að taka í lífinu og ef maður ætlar að vera kvíðin og hræddur við þessa hluti þá mun maður aldrei gera neitt í lífinu, sama prinsipið og með hryðjuverkin, maður getur ekki verið hræddur við að fljúga aftur bara afþví að það gæti verið terroristi í vélinni.

Maður verður á endanum að taka ákvarðanir og maður á að hugsa svona hluti í gegn áður en eitthvað er aðhafst.

Maður getur ekki láttið kvíða og hræðslu stöðva sig í lífinu þá er maður sem gott sem dauður.

 


c_documents_and_settings_vakt3_my_documents_my_pictures_new_folder_000548494.jpg

Miðbærin á laugardagskveldi....

Sorglegt þykir mér nú hvað miðbærin hefur breyst á einu ári.

Ég flutti út til Englands fyrir rúmu ári síðan en er nú komin aftur og búin að vera í rúma 4 mánuði. Þegar ég fór var t.d Opus enn opið sem að mínu mati var besti staðurin,á margar minningar þaðan bæði góðar og slæmar. Þegar ég kom aftur þá var bara helvítis Landsbankin búin að kaupa húsið og búin að búa til einhverjar árans skrifstofur, þeir vita ekki hvurs konar gleðispillar þeir eru. Ég fann sanna sorg í hjartanu þegar ég komst að því að búið væri að loka staðnum því ég sé ekki fram á að ég geti nokkur staðar skemmt mér eins vel og á Opus 7. GrátaGrátaGráta

 En Glaumbar er víst besti staður að ég hélt! Þar til í gær þegar ég og Shaun ætluðum að skella okkur þangað, fannst bara að Shaun yrði að sjá allt glaumið á barnum, en hvað haldiði að þeir séu búnir að taka upp núna??? DRESSCODE takk fyrir s.s maður labbar ekki þangað inn sé maður karlmaður nema maður sé eins og sleiktur köttur s.s bindi, skyrta, ný pússaðir skór og pressaðar buxur!!! hvaða rugl er þetta???ÖskrandiÖskrandiÖskrandi

Café Victor er nú orðin bara hálfgerður útlendinga/gamlingja staður eða "gamlirútlendingarhangoutchilloutzone" en það er alveg ok þar svona einstaka sinnum.

Fyrir hina staðina hef ég aldrei verið mikið gefin fyrir s.s Sólion, Prikið og þetta dót.

Dillon er samt svalur staður ef maður er að fýla að sitja bara bulla einhverja helvítis vitleysu, sötra bjór og hlusta á almennilegt rokk.SvalurSvalurSvalur

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband